Heim › ...

Rangstæður í Reykjavík
Höfundur: Gunnar Helgason
Flytjandi: Gunnar Helgason
7 klst 24 mín
Mál og menning
Um bókina
Varstu að deyja úr spennu yfir Víti í Vestmannaeyjum? Og varstu með hjartað í buxunum þegar þú lagðir frá þér Aukaspyrnu á Akureyri? Þá er þetta bókin fyrir þig! Hvað varð um Ívar? Fór Eivör í atvinnumennskuna? Hvar í veröldinni er Rósa? Jón Jónsson og félagar hans eru komnir á ReyCup ásamt stelpum og strákum í 3. og 4. flokki frá öllu landinu og meira að segja frá útlöndum! Þar ríkir gríðarleg spenna og strákarnir komast að því að rangstöðureglur eru flóknar, bæði í fótboltanum og lífinu sjálfu.
Gunnar Helgason hefur um árabil getið sér gott orð fyrir barnaefni af ýmsu tagi. Bækurnar hans um fótboltastrákinn Jón Jónsson hafa vakið bókaorminn í þúsundum lesenda á öllum aldri.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app


