Heim › ...
Nóttin hefur þúsund augu eftir Árni Þórarinsson - hljóðbók

Nóttin hefur þúsund augu

6 klst 3 mín
Forlagið
Bók 1 af 7 í Einar

Um bókina

Morð er tilkynnt á Flugvallarhótelinu og Einar blaðamaður er rifinn grúttimbraður upp úr rúminu til að flytja fréttirnar fyrstur allra. Af tilviljun fær hann að heyra ýmislegt sem starfsfélagarnir heyra ekki og verður óvænt helsti heimildamaður þjóðarinnar um þennan hrottafengna glæp. Honum veitir heldur ekki af velgengninni. Síðustu ár hefur hallað undan fæti hjá þessum uppreisnargjarna gleðimanni sem hangir í starfi fyrir náð og miskunn ritstjórans. Einari er falið að fylgja málinu eftir og hann anar af stað.

Ekki grunar hann þá að fleira en glæpurinn komi í ljós. Bók þessi kom upphaflega út 1998 og var fyrsta spennusaga höfundarins Árna Þórarinssonar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 990 kr