Heim › ...
Nói og töfrahringurinn eftir Hilmar Sverrisson - hljóðbók

Nói og töfrahringurinn

4 klst 12 mín
Hilmar Sverrisson
Bók 1 af 3 í Nói

Um bókina

Nói er ósköp venjulegur 11 ára drengur í Reykjavík sem er sendur í sveit norður í Skagafjörð. Þar lendir hann í ýmsum verulega furðulegum ævintýrum í stað þess að mjólka og reka beljur eða hugsa um ísbirni eins og einn vinur hans stakk upp á að hann yrði látinn gera. Hann kynnist þar furðulegu fólki, ss. glæpamönnum, álfum, draugum og öflum sem hann hefði haldið að ekki væri til. Nói eignast líka vini sem reynast honum ómetanlegir í baráttu milli góðs og ills. Hann meira að segja gleymir í nokkrar vikur að það sé eitthvað til sem heitir internet og sími. Þessi dvöl hans á bænum Árkoti á Skaga kemur til með að hafa mikil áhrif á Nóa um alla framtíð.

Nói og töfrahringurinn er æsispennandi og dularfull saga sem heldur lesandanum við efnið frá upphafi til enda.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán