
Náðu tökum á þyngdinni – með hugrænni atferlismeðferð
Höfundur: Sóley Dröfn Davíðsdóttir
Flytjandi: Ebba Guðný Guðmundsdóttir
Um bókina
Ertu í stöðugri baráttu við aukakílóin? Sveiflastu milli þess að halda í við þig og missa tökin á mataræðinu? Fyllistu vonleysi þegar þú ferð aftur í sama farið? Fjölmargir eru í þessum sporum þrátt fyrir dugnað og löngun til að grennast.
Í samfélaginu er hvatt til síaukinnar neyslu sem kemur sér illa því ásóknin í orkuríka fæðu er okkur eðlislæg. Þessi þörf magnast þegar við neitum okkur um mat í þeim tilgangi að grennast. Með hugrænni atferlismeðferð má rjúfa vítahring megrunar og stjórnleysis með því að tileinka sér hugarfar og venjur sem markast af skilningi á þörfum líkamans.
Það stuðlar að betri þyngdarstjórn, meiri vellíðan og sátt við eigin líkama. Hugarfarið er gleymda vopnið í baráttunni en jafnframt það öflugasta. Sóley Dröfn Davíðsdóttir er forstöðusálfræðingur Kvíðameðferðarstöðvarinnar. Hún hefur lokið sérnámi í hugrænni atferlismeðferð og er með sérfræðingsviðurkenningu í klínískri sálfræði.
Hér í frábærum lestri Ebbu Guðnýjar Guðmundsdóttur.
Efnisorð
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app


