Heim › ...
Myrkrið veit eftir Arnaldur Indriðason - hljóðbók

Myrkrið veit

9 klst 28 mín
Vaka-Helgafell
Bók 1 af 3 í Konráð

Um bókina

Lík finnst frosið fast í ísinn á Langjökli. Það reynist vera af athafnamanni sem hvarf fyrir þrjátíu árum. Umfangsmikil leit bar engan árangur, viðskiptafélagi mannsins sat í varðhaldi um tíma en ekkert sannaðist.

Nú er félaginn handtekinn á ný og kallað í Konráð, lögreglumann á eftirlaunum sem rannsakaði málið í upphafi. Það hefur ásótt hann alla tíð og þegar til hans leitar kona með nýjar upplýsingar kemst aftur skriður á þetta óleysta sakamál. Myrkrið veit er mögnuð saga um eitruð leyndarmál og grimman sannleika sem tíminn færir um síðir upp á yfirborðið. Arnaldur Indriðason hefur verið helsti glæpasagnahöfundur landsins í tvo áratugi. Skáldsögur hans hafa verið þýddar á um fjörutíu tungumál og selst í yfir tólf milljónum eintaka.

Sögurnar njóta gríðarlegra vinsælda heima og heiman og hafa fært höfundi sínum ótal verðlaun og viðurkenningar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán