Heim › ...
Múmínálfarnir 2: Vetrarundur í múmíndal eftir Tove Jansson - hljóðbók

Múmínálfarnir 2: Vetrarundur í múmíndal

Höfundur: Tove Jansson

Flytjandi: Friðrik Erlingsson

Þýðandi: Steinunn Briem

3 klst 21 mín
Mál og menning
Bók 2 af 5 í Múmínálfarnir

Um bókina

Einn dimman morgun hrekkur múmínsnáðinn óvænt upp úr vetrardvalanum. Allir í múmíndal eru í fastasvefni og veröldin er framandi: hvít og ísköld. Yndisleg saga af snáða sem finnst verst af öllu að vera vakandi innan um þá sem steinsofa, en herðir upp hugann; stingur sér á bólakaf í snjóskafl og eignast óvænt nýja vini.

Allir þekkja múmínálfana, þessar stórskemmtilegu ævintýraverur sem hafa glatt ótal börn og fullorðna áratugum saman - í sjónvarpsþáttum, teiknimyndasögum, bíómyndum og ekki síst bókum. Fyrsta sagan kom út 1945 en Múmíndalurinn varð fullmótað sögusvið í Halastjörnunni. Bækurnar hafa notið gífurlegra vinsælda og verið þýddar á yfir 40 tungumál. Hér er komin sjötta sagan í þessu dásamlega ævintýri, í einstökum lestri Friðriks Erlingssonar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán