Heim › ...
Morðið í Öskjuhlíð eftir Stella Blómkvist - hljóðbók

Morðið í Öskjuhlíð

Höfundur: Stella Blómkvist

Flytjandi: Aníta Briem

7 klst 29 mín
Mál og menning/Forlagið
Bók 12 af 12 í Stella Blómkvist

Um bókina

Árið er 1995 og Stella Blómkvist er nýútskrifaður lögfræðingur. Þegar þekktur blaðamaður hverfur í tengslum við rannsóknir sínar dregst hún inn í mál sem verður fljótlega að snúinni morðgátu sem teygir anga sína víða um heiminn. Og þegar ung kona þarf að leita réttar síns eftir nauðgun getur Stella ekki annað en hjálpað henni, jafnvel þótt valdamiklir aðilar reyni að stöðva hana.

Hér er allt á sínum stað: góðkunningjar og hjálparkokkar eins og Nonni Daníels, ástkonur og elskhugar – og óbilandi réttlætiskennd.

Morðið í Öskjuhlíð er þrettánda bókin um Stellu Blómkvist, þetta kjaftfora, ofursvala og óþreytandi gæðablóð sem vílar ekki fyrir sér að takast á við morðingja og valdasjúka siðvillinga vopnuð snarræði, innsæi, tilsvörum og spakmælum frá mömmu. Hér sem áður í mögnuðum lestri Anítu Briem.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán