
Um bókina
Snjónum kyngir niður í Arvidsträsk þegar íbúarnir sem búsettir eru í kringum vatnið koma saman í þorpshúsinu til að opna fyrsta glugga jóladagatalsins, eins og venja er.
Viðstöddum bregður í brún þegar dagatalsglugginn er opnaður því þar bíða þeirra skilaboð. Einkum fer um þá eldri í hópnum, sem margir hverjir minnast með hryllingi morðanna sem framin voru fjörutíu árum fyrr og morðinginn fannst aldrei.
Nú þegar hin viðurstyggilega ógn dauðans vofir aftur yfir þorpinu finnur Rolf Ström, lögreglumaður á eftirlaunum, sig knúinn til að hafa hendur í hári morðingjans sem hefur komist undan réttvísinni öll þessi ár.
Honum til aðstoðar, bæði við að leysa ráðgátur fortíðar og nútíðar, er glæpasagnahöfundurinn Riita Niemi sem er nýflutt til þorpsins þar sem hún sækist eftir kyrrðinni og myrkrinu á þessum slóðum.
Í kapphlaupi við tímann verða Rolf og Riita að komast að því hver stendur á bak við hótunina, áður en einhver nágranna þeirra verður næsta fórnarlamb morðingjans. Og eitt er víst: morðinginn er á meðal þeirra.
Jóladagatal: Morðgáta um aðventu
Bók 1 af 2
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app

