Heim › ...

Um bókina
Skelfing grípur íbúa Stokkhólms. Ódæðismaður leikur lausum hala og misnotar og myrðir litlar stúlkur. Lögreglan er ráðalaus og hefur engar vísbendingar nema kannski gamalt sporvagnskort – og ekkert vitni nema þriggja ára snáða og hugsanlega ræningja sem ekki hefur náðst.
En svo rifjar Martin Beck upp símtalið um manninn á svölunum … Maðurinn á svölunum er þriðja sagan í spennusagnaflokknum Skáldsaga um glæp eftir Maj Sjöwall og Per Wahlöö. Eftir henni var gerð kvikmynd sem naut mikilla vinsælda. Þráinn Bertelsson þýddi bókina sem kom fyrst út á íslensku árið 1978. Norski spennusagnahöfundurinn Jo Nesbø skrifar formála að þessari útgáfu.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app








