Heim › ...
Litla bókabúðin við vatnið eftir Jenny Colgan - hljóðbók

Litla bókabúðin við vatnið

Höfundur: Jenny Colgan

Flytjandi: Esther Talía Casey

Þýðandi: Erna Erlingsdóttir

12 klst 36 mín
Angústúra
Bók 2 af 4 í Litla bókabúðin

Um bókina

Zoe býr við þröngan kost í London með ljúfa drengnum sínum Hari sem af einhverjum ástæðum talar ekki. Þegar leigusalinn tilkynnir Zoe að hann ætli að hækka leiguna veit hún ekki hvað hún á til bragðs að taka. Faðir Hari tekur litla sem enga ábyrgð á umönnun eða uppeldi sonarins og Zoe finnst hún vera í vonlausri stöðu.

Nina rekur bókabúð í sendibíl nærri Loch Ness í Skotlandi og bráðvantar einhvern til að leysa sig af, því hún á von á sínu fyrsta barni með hægláta bóndanum Lennox.

Þegar Zoe býðst að sjá um bókabílinn fyrir Ninu, og gæta barna fyrir herragarðseigandann og einstæða föðurinn Ramsay Urquart í skiptum fyrir húsnæði, grípur hún tækifærið í von um betra líf. Sú ákvörðun á eftir að reynast afdrifarík fyrir fleiri en þau mæðginin.

Hugljúf saga um traust, vináttu og ást. Sjálfstætt framhald Litlu bókabúðarinnar í hálöndunum.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán