
Um bókina
Sookie Stackhouse getur lesið hugsanir. Hún hefur alltaf álitið það leiðindafötlun en vampírurnar í Louisiana meta hæfileika hennar mikils og notfæra sér grimmt. Að þessu sinni þurfa þær á þjónustu hennar að halda í Dallas þar sem vampíra er horfin sporlaust. Rétt áður en Sookie yfirgefur smábæinn Bon Temps finnst samstarfsmaður hennar, kokkurinn Lafayette, myrtur í bíl lögreglumanns og böndin berast að dularfullum kynlífsklúbbi sem sögur segja að sé starfræktur í bænum.
Bækur Charlaine Harris um hugsanalæsu gengilbeinuna Sookie Stackhouse njóta gríðarlegra vinsælda og eftir þeim eru gerðir sjónvarpsþættirnir vinsælu True blood. Lifandi dauð í Dallas er önnur bókin í seríunni sem út kemur á íslensku, hin fyrri Dauð þar til dimmir vakti verðskuldaða athygli.
Halla Sverrisdóttir þýddi. Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir les.
Sookie Stackhouse
Bók 2 af 2
Efnisorð
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.990 kr
Sækja app

