
Leyniviðauki 4 - Stefán Bjarnason verjandi, þriðja bók
Höfundur: Óskar Magnússon
Flytjandi: Friðrik Erlingssson
Um bókina
Leyniviðauki 4 er þriðja bókin um Stefán Bjarnason verjanda, sem er hörkutól í dómssal en eins og leir í höndum fagurra fljóða. Þetta er spennandi og ófyrirsjáanlegt sakamáladrama kryddað kerskni og hárbeittu háði.
Hrottalegt morð er framið í bandarísku herstöðinni á Miðnesheiði. Íslenskur verkfræðingur á miðjum aldri situr í haldi lögreglunnar, grunaður um verknaðinn. Þá kemur til kasta Stefáns hæstaréttarlögmanns sem þarf að takast á við óvenjulegar flækjur þar sem Bandaríkjamenn krefjast þess að fá forræði málsins og hafa í hótunum um brottflutning Varnarliðsins.
En Stefán stýrir vörninni af þeirri festu og öryggi sem hann er kunnur af, þótt öllu minna fari fyrir stöðuglyndinu í einkalífinu.
Efnisorð
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 3.990 kr
Sækja app


