Heim › ...
Leyniviðauki 4 - Stefán Bjarnason verjandi, þriðja bók eftir Óskar Magnússon - hljóðbók

Leyniviðauki 4 - Stefán Bjarnason verjandi, þriðja bók

9 klst 2 mín
Forlagið
Bók 3 af 3 í Verjandinn

Um bókina

Leyniviðauki 4 er þriðja bókin um Stefán Bjarnason verjanda, sem er hörkutól í dómssal en eins og leir í höndum fagurra fljóða. Þetta er spennandi og ófyrirsjáanlegt sakamáladrama kryddað kerskni og hárbeittu háði.

Hrottalegt morð er framið í bandarísku herstöðinni á Miðnesheiði. Íslenskur verkfræðingur á miðjum aldri situr í haldi lögreglunnar, grunaður um verknaðinn. Þá kemur til kasta Stefáns hæstaréttarlögmanns sem þarf að takast á við óvenjulegar flækjur þar sem Bandaríkjamenn krefjast þess að fá forræði málsins og hafa í hótunum um brottflutning Varnarliðsins.

En Stefán stýrir vörninni af þeirri festu og öryggi sem hann er kunnur af, þótt öllu minna fari fyrir stöðuglyndinu í einkalífinu.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 3.990 kr