Heim › ...
Leyndir þræðir eftir Colin Dexter - hljóðbók

Leyndir þræðir

6 klst 46 mín
Mál og menning
Bók 2 af 5 í Morse

Um bókina

Nýja árið gengur í garð á Haworth hótelinu með tilheyrandi ölvun, flugeldum, grímudansleik – og morði.

Fórnarlambið er sigurvegarinn úr samkeppninni um besta grímubúinginn og þó að menn klæði hann úr eru þeir engu nær, enginn veit hver hann er, né hver hin horfna „eiginkona“ hans er; og enginn veit hvað varð um fjóra hótelgesti sem jörðin hefur skyndilega gleypt. Og hvernig í ósköpunum tengist framhjáhald Margrétar Bowman þessu öllu?

Það er lögreglufulltrúinn snjalli, Morse, sem hér kemur til skjalanna og rekur í sundur hina leyndu þræði – fagurkerinn og piparsveinninn sem hefur yndi af Mozart og T.S Eliot og góðum bjór og ekki síst: fögrum konum. Hér í frábærum lestri Þorvalds Davíðs Kristjánssonar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.990 kr