
Um bókina
Í meira en þrjá áratugi hefur Patricia Cornwell verið einn vinsælasti og virtasti glæpasagnahöfundur heims. Bækur hennar hafa verið þýddar á nær 40 tungumál og selst í um 120 milljónum eintaka.
Réttarmeinafræðingurinn dr. Kay Scarpetta er kölluð á vettvang óhugnanlegs morðs þar sem illa leikið lík konu hefur verið stillt upp. Um líkt leyti verða óútskýrð andlát á leynilegri rannsóknarstofu úti í geimnum. Kay fær það verkefni hjá yfirvöldum að komast að því hvað gerðist – í hugsanlega fyrsta glæpnum sem framin er úti í geimnum. Meðan á þeirri rannsókn stendur virðist raðmorðingi fara á kreik. Brátt er Kay Scarpetta sjálf í meiri hættu en nokkru sinni fyrr.
„Scarpetta er fyrsti kvenspæjarinn sem er að öllu leyti sannfærandi, náskyld Sherlock Holmes í því að treysta eingöngu á gáfur sínar fremur en heppni og vöðvamátt til að leysa erfið glæpamál.“ – Independent
„Patricia Cornwell á sér ekki sinn líka þegar að því kemur að rita margslungnar spennusögur þar sem atburðarrásin er í senn óvænt og hröð.
Kay Scarpetta
Bók 1 af 4
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app



