Heim › ...
Kossar og ólífur eftir Jónína Leósdóttir - hljóðbók

Kossar og ólífur

4 klst 52 mín
Vaka-Helgafell
Bók 1 af 3 í Anna í Brighton

Um bókina

Anna skildi ekki hvað krökkum fannst svona spennandi við kossa. Hún hafði kysst þrjá stráka og fannst það ekkert sérstakt. Kannski var fyrsti kossinn aldrei neitt merkilegur þótt fáir vildu viðurkenna það. Anna hafði að minnsta kosti orðið svo stressuð þegar hún áttaði sig á að þessi tímamótaviðburður var í vændum að hún var við það að kasta upp …

Í bókinni Kossar & ólífur eftir Jónínu Leósdóttur fylgjum við unglingsstúlkunni Önnu til Brighton á Englandi, þar sem hún vinnur sumarlangt á hóteli. Þetta sumar kynnist Anna ýmsu sem kemur henni á óvart – bæði framandi aðstæðum og spennandi fólki, en ekki síður nýjum tilfinningum sem bærast með henni sjálfri.

Hér er skrifað um ýmis viðkvæm mál af fimi og nærgætni. Sagan fjallar um það sem getur fylgt því að stíga inn í heim hinna fullorðnu og því á hún erindi við unglinga á öllum aldri. Katla Njálsdóttir les.

Efnisorð

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán