Heim › ...
Köngulóarmaðurinn – Upprunasaga eftir Marvel - hljóðbók

Köngulóarmaðurinn – Upprunasaga

2 klst 31 mín
Saga Egmont
Hluti af Spider-Man

Um bókina

HETJA VERÐUR TIL!

Peter Parker er ósköp venjulegur menntaskólanemi þar til slys á rannsóknarstofu breytir lífi hans, að eilífu. Þegar geislavirk könguló bítur hann fær hann ofurkrafta. Skyndilega getur hann hoppað ofurmannlega langt, fest sig á lóðrétta fleti og klifið háhýsi eins og ekkert sé. En hvað á Peter að gera við þessa nýju krafta sína? Fyrst um sinn notar hann þá til að græða svolitla peninga, til að hjálpa May frænku sinni og Ben frænda, en þegar harmleikur á sér stað verður Peter að taka mikilvæga ákvörðun. Getur Köngulóarmaðurinn staðið undir ábyrgðinni sem fylgir þessum miklum kröftum og notað þá til góðs?

Spider-Man

Í Hefnendunum berjast stærstu (og minnstu) ofurhetjurnar saman við að bjarga heiminum frá hættulegum ofurskúrkum og illum öflum. Hittu Járnmanninn, Kaftein Ameríku, Þór, Svörtu ekkjuna, Svarta pardusinn og alla hina og komdu með í skemmtileg ævintýr með heimsins mestu hetjum!

© Disney/Marvel. All rights reserved.

Fylgstu með ævintýraheimi Marvel! Hlustaðu á spennandi frásagnir af Hefnendunum: Járnmanninum, Köngulóarmanninum, Hulk, Kaftein Ameríku, Svörtu ekkjunni, Þór, Haukfráni, Marvel liðsforingja, Fálka og öllum hinum hetjunum og illmennunum úr ótrúlegum fjársjóðskistum Marvels. Skelltu þér í skikkjuna og finndu þína innri ofurhetju - nú förum við í æsileg ævintýr!

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán