
Um bókina
Dee dómari, hinn frægi meistari í uppljóstrun glæpa, er nýtekinn við dómstólnum í borginni Poo-yang. Hans fyrsta verkefni er að hnýta lausa enda í hrottalegu morðmáli sem bíður úrskurðar. Hin unga Hreina Jaði hefur verið myrt á heimili sínu á Hálfmánastræti og bendir allt til þess að leynilegur elskhugi hennar hafi verið að verki. Inn í málið flækjast sögusagnir af kraftaverkum úr munkamusteri þar sem fjölmargar konur hafa orðið barnshafandi í nafni trúarinnar.Ráðgátur Dee Dómara Bækurnar um ráðgátur Dee dómara eru byggðar á fornum glæpabókmenntum þar sem Dee leysir margslungin mál sem eiga mörg hver rætur sínar að rekja úr raunverulegum dómsmálum frá Kína.Robert van Gulik (1910-1967) var hollenskur rithöfundur sem er best þekktur fyrir ævintýrin um Dee dómara.
Sögupersónuna fékk hann að láni úr kínverskri skáldsögu frá 18. öld sem hann þýddi yfir á ensku og var hans fyrsta útgefna verk. Í kjölfarið skrifaði hann 17 bækur um Dee dómara sem komu út á árunum 1949-1968. Gulik var margt til lista lagt en ásamt ritstörfunum var hann austurlandafræðingur, diplómati og tónlistarmaður.
Ráðgátur Dee Dómara
Bók 1 af 2
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app

