
Hin systirin
Höfundar: Mohlin & Nyström, Peter Mohlin, Peter Nyström
Flytjandi: Kristján Franklín Magnús
Þýðandi: Friðrika Benónýsdóttir
Um bókina
Fólk lítur undan þegar það sér andlit Aliciu Bjelke, svo afmyndað er það. Hún hefur skapað sér líf sem forritari og er höfundur að vinsælli stefnumótasíðu ásamt Stellu systur sinni. Stella er gullfalleg og er andlit fyrirtækis þeirra systra út á við.
Þegar Stella er myrt veit Alicia að lífi hennar er líka stefnt í voða – hún gæti verið næsta fórnarlamb morðingjans.
Fyrrum FBI-fulltrúanum John Adderley er falin rannsókn málsins. Hann býr í Karlstad undir nýju nafni og þarf að glíma við skugga fortíðarinnar. John hyggst yfirgefa Svíþjóð og morðrannsóknin virðist ætla að reynast óvænt tækifæri fyrir hann til að komast undan leigumorðingjunum sem eru á hælum hans.
HIN SYSTIRIN er önnur bókin um John Adderley.
„Spennandi og ófyrirsjáanleg. Þú heldur að þú vitir hvað gerist næst en ... ó nei, þú veist það ekki.“ – Bokmoster
John Adderley
Bók 2 af 4
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app



