
Henri rænt í Rússlandi
Höfundur: Þorgrímur Þráinsson
Flytjandi: Haraldur Ari Stefánsson
Um bókina
Hvað er það sem felur sig í dimmum skógum Rússlands?
Enn er lukkudýrinu Henri boðið að horfa á íslenska karlalandsliðið í fótbolta spila – og nú við Argentínu og sjálfan Lionel Messi á HM í Moskvu. Hin dularfulla Mía slæst í för með honum en á leiðinni bíða þeirra gríðarmiklar svaðilfarir svo þau þurfa aftur og aftur að berjast fyrir lífi sínu.
Fyrri bækurnar um Henri, Henri og hetjurnar og Henri hittir í mark, slógu rækilega í gegn og hér kemur æsispennandi framhaldsbók sem hlustendur munu varla geta slitið sig frá.
Þorgrímur Þráinsson sendi frá sér fyrstu bók sína 1989 og hefur verið í hópi vinsælustu barna- og unglingabókahöfunda landsins æ síðan. Hann hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir bók sína Ertu guð, afi? og hefur í tvígang hlotið Bókaverðlaun barnanna.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.490 kr
Sækja app


