Heim › ...
Heknevefurinn eftir Lars Mytting - hljóðbók

Heknevefurinn

Höfundur: Lars Mytting

Flytjandi: Hildigunnur Þráinsdóttir

Þýðandi: Jón St

16 klst 17 mín
Mál og menning
Bók 2 af 2 í Systraklukkurnar

Um bókina

Schweigaard kom heim á Bútanga með Jehans, nýfæddan son Astridar Hekne. Hann iðrast enn beisklega að hafa látið rífa gömlu stafkirkjuna og aðskilja kirkjuklukkurnar sem voru steyptar til minningar um samvöxnu tvíburasysturnar í ætt Astridar. Hann verður heltekinn af að finna myndvefnaðinn sem systurnar ófu í þeirri von að hann vísi honum leiðina til að sameina klukkurnar á ný og bæta fyrir brot sín.

Jehans veit ekkert um samviskubit prestsins. Honum hefur verið útskúfað úr Hekne-ættinni en er í staðinn orðinn fengsæll veiðimaður í fjöllunum. Og þar hittir hann dag einn dularfullan veiðimann frá öðru landi …

Heknevefurinn eftir Lars Mytting, einn vinsælasta höfund Norðmanna um þessar mundir, er sjálfstætt framhald Systraklukknanna sem heillað hefur lesendur hvarvetna og hlotið fjölmargar viðurkenningar. Þetta er stórbrotin frásögn um þjóð á tímamótum, um áþján og ófrelsi fortíðar, um beislun fossanna og fyrsta rafmagnsljósið í myrkri sveitanna, og um styrjöldina miklu.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 2.990 kr