Um bókina

Konu er nauðgað á hóteli í miðborg Karlstad og hún hverfur síðan sporlaust. Á hótelherbergi konunnar finnast karlmannshanskar og á þeim lífsýni Ulvsbymorðingjans sem myrti móður sína og hefur verið í felum í átta ár.

John Adderley og samstarfsfólki hans í lénslögreglunni í Karlstad fá málið í hendur. Við rannsóknina beinist athyglin að forstjóra byggingafyrirtækis sem hyggur á miklar framkvæmdir í nágrenni borgarinnar.

Hægri höndin er fjórða sjálfstæða bókin um fyrrum FBI-fulltrúann John Adderley sem fer huldu höfði undir nýju nafni í Svíþjóð, á flótta undan alræmdum eiturlyfjabarón.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán