Heim › ...
Guli hundurinn eftir Georges Simenon - hljóðbók

Guli hundurinn

4 klst 21 mín
Ugla útgáfa
Bók 2 af 2 í Maigret lögregluforingi

Um bókina

Í vindasömum strandbæ að nafni Concarneau særist vínkaupmaður nokkur hættulega í skotárás. Það hrindir af stað röð undarlegra atburða og brátt grípur sig mikill ótti í bænum. Svo virðist sem einhver ætli sér að ráða alla áhrifamenn bæjarins af dögum.

Maigret lögregluforingi tekst á við rannsókn málsins sem leiðir í ýmsar áttir og þar á meðal til fölleitrar þjónustustúlku og undarlegs hunds sem læðist með skuggsælum veggjum ...

Belgíski rithöfundurinn Georges Simenon (1903–1989) hóf rithöfundaferil sinn í París um tvítugt. Hann sló í gegn með bókum sínum um Maigret en alls skrifaði hann rúmlega 400 skáldsögur.

„Maigret-bækurnar eru tímalausar rétt eins og París.“ – The Washington Post

„Einn mikilvægasti rithöfundur tuttugustu aldar.“ – Gabriel García Márquez

„Maigret er á sama stalli og Sherlock Holmes og Poirot í musteri ódauðlegra leynilögreglumanna í glæpasögum.“ – People

„Frábær ... Einstakur sögumaður.“ – The Observer

„Einn af mestu rithöfundum tuttugustu aldar.“ – Guardian

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán