Heim › ...

Um bókina

Nornaseiður er fyrsta bókin í splunkunýrri og spennandi ævintýraseríu fyrir börn og unglinga. Sagan er ríkulega myndskreytt.

Íma er ósátt við lífið. Öll leiðinlegustu skyldustörfin á eyjunni lenda á henni á meðan systir hennar fær að nema galdur hjá nornunum! Andreas lærir járnsmíðar af pabba sínum á meginlandinu en dreymir um að verða riddari og vinna hetjudáðir.

En örlögin hafa ætlað þeim báðum annað og brátt verða óvæntir og skelfilegir atburðir sem setja tilveru þeirra gjörsamlega í uppnám.

Gunnar Theodór Eggertsson hefur fengið verðlaun og viðurkenningar fyrir barna- og unglingabækur sínar Steindýrin og Drauga-Dísu.

Fífa Finnsdóttir myndskreytir býr í Berlín þar sem hún vinnur við tölvuleikjagerð.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.990 kr