Heim › ...

Um bókina

Á hverju ári er spilaður mjög mikilvægur fótboltaleikur í Víkurbæ. Lið Víkurbæjar mætir liði Sólbakka. Sólin skín og mannfjöldinn fagnar þegar leikmenn hlaupa inn á völlinn. Þarna kemur María skólahjúkrunarfræðingur, sem er í sókn ásamt Múhameð Karat. Og með Barböru sem varnarmann og lögreglustjórann í markinu getur ekkert klikkað, ekki satt? Sérstaklega ekki þar sem nýr þjálfari liðsins - póstmaðurinn Franco Bollo - er með starfsréttindi frá Ítalíu ... Eða hvað?

Sögurnar um Spæjarastofu Lalla og Maju hafa slegið í gegn hjá íslenskum krökkum og spæjarar á aldrinum 6–10 ára lesa Ráðgátubækur Martins Widmark aftur og aftur – og í hvaða röð sem er. Hér í stórskemmtilegum lestri Þóreyjar Birgisdóttur!

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán