
Um bókina
Morguninn eftir ostruhátíðina miklu vaknar lögreglufulltrúinn Karen Eiken Hornby grúttimbruð á hótelherbergi og veit það eitt að hún verður að koma sér burt áður en maðurinn sem hrýtur við hlið hennar vaknar. Sama dag finnst kona myrt og Karen stýrir rannsókninni.
Það flækir málið óneitanlega að fórnarlambið er fyrrverandi eiginkona yfirmanns Karenar – mannsins sem hún vaknaði hjá um morguninn. Eftir því sem Karen kafar dýpra kemur fleira upp á yfirborðið og draugar úr fortíðinni gægjast fram. Liggja rætur glæpsins í kommúnu á áttunda áratugnum, sögu Smeed-ættarinnar eða í eiturlyfjaneyslu og afbrotum nútímans? Smám saman tengist Karen ýmsum málsaðilum sterkari böndum og fer að rifja upp eigin fortíð og ástæðu þess að hún hefur reynt að gleyma henni … Maria Adolfsson hefur hér skapað sögusviðið Doggerland, kunnuglegt og sannfærandi en um leið nýtt og spennandi – uppfullt af áhugaverðum persónum sem lesandann þyrstir í að kynnast betur.
Doggerland
Bók 1 af 3
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.490 kr
Sækja app


