Heim › ...
Eplamaðurinn eftir Anne Mette Hancock - hljóðbók

Eplamaðurinn

Höfundur: Anne Mette Hancock

Flytjandi: Sara Dögg Ásgeirsdóttir

Þýðandi: Nanna B

7 klst 43 mín
JPV
Bók 2 af 2 í Helene Eriksen

Um bókina

Tíu ára gamall drengur hverfur sporlaust úr skólanum. Af Instagram-reikningi hans að dæma hefur hann verið heltekinn af að finna mynstur sem minna á andlit í hvers­dagslegum hlutum. Ein myndanna vekur sérstaka athygli rannsakenda málsins: Hrörlegar hlöðudyr sem líkjast glottandi ásjónu.

Vísbendingarnar hrannast upp en virðast benda hver í sína áttina. Uppgjafahermaður finnst látinn, leynileg skila­boð eru uppgötvuð í herbergi drengsins og svo er eins og móðir hans hafi eitthvað að fela. Hvar eru þessar hlöðudyr? Og hver er Eplamaðurinn sem krakkarnir tala um?

Eplamaðurinn er ískyggileg og æsispennandi saga eftir danska blaðamanninn og sagnfræð-inginn Anne Mette Hancock sem sló rækilega í gegn með fyrstu glæpasögu sinni, Líkblóminu. Hér mæta þau aftur til leiks, blaðakonan Heloise Kaldan og Erik Schäfer lögreglumaður, gallhart tvíeyki sem gefst ekki upp fyrr en sannleikurinn kemur í ljós. Í frábærum lestri Söru Daggar Ásgeirsdóttur.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.793 kr