Heim › ...

Um bókina

„Þegar þrumur og eldingar springa yfir dimmri kvöldsvæfri borginni er engu líkara en leikið sé á ótal rafmögnuð hljóðfæri í loftinu. Þá glymur allt og glamrar. Skruðningar líkir útvarpstruflunum veltast um og ískur einsog í fjölmörgum óstilltum fiðlum fyllir hlustir jafnt þeirra sem framliðnir svífa og hinna er lifandi ganga.“

Eftirmáli regndropanna er þriðji og síðasti hluti vinsæla þríleiks Einars Más Guðmundssonar um lífið í nýreistu og ómótuðu hverfi í Reykjavík. Þar getur allt gerst , raunsæi og fantasía vegast á, og jöfnum höndum er lýst hversdagslegu lífi sem undrum og stórmerkjum, líkt og í fyrri bókunum; Riddara hringstingasns og Vængjaslætti í þakrennum.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán