Heim › ...

Draugagangur á Skuggaskeri
Höfundur: Sigrún Eldjárn
Flytjandi: Andrea Ösp Karlsdóttir
4 klst 1 mín
Mál og menning
Um bókina
Merkin sem berast frá njósnahnettinum hafa komið honum á sporið. Ánægjuglott færist yfir andlit hans. Hann hefur nefnilega uppgötvað lítið og skrítið sker sem lúrir úti í hafi og lumar á dýrmæti sem vert er að rannsaka betur.
Strokubörnin eru fundin! En þau neita að snúa heim fyrr en fullorðna fólkið hefur lagfært allt sem eyðilagðist í stríðinu heima í Fagradal. Sumarið er framundan og Skuggasker heimsins besti staður. Eða hvað? Getur verið að hér sé eitthvað hættulegt á sveimi?
Draugagangur á Skuggaskeri er spennandi saga fyrir lesendur frá níu ára aldri og framhald sögunnar Strokubörn á Skuggaskeri sem tilnefnd var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app


