Heim › ...
Dagbók Kidda klaufa #3 – Ekki í herinn! eftir Jeff Kinney - hljóðbók

Dagbók Kidda klaufa #3 – Ekki í herinn!

Höfundur: Jeff Kinney

Flytjandi: Oddur Júlíusson

Þýðandi: Helgi Jónsson

2 klst 5 mín
Sögur útgáfa
Bók 3 af 8 í Dagbók Kidda klaufa

Um bókina

Kiddi er klaufskur og ræfilslegur í augunum á pabba sínum. Friðgeir vill herða drenginn – manna hann upp – og hótar að senda drenginn í herskóla, ef ekkert breytist. Þá sér Kiddi að hann verður að gera eitthvað í málinu.

Hér er þriðja bókin um Kidda, en Dagbók Kidda klaufa er einn mest seldi og vinsælast bókaflokkur fyrir ungmenni um allan heim og sá vinsælasti á Íslandi síðustu tíu árin. Bækurnar eftir bandaríska höfundinn og teiknarann Jeff Kinney þykja aðgengilegar, fyndnar og stuðla að meiri áhuga lesenda á bókalestri.

Bókaflokkurinn um Kidda klaufa leit fyrst dagsins ljós árið 2007 í Bandaríkjunum og er nú loks væntanlegur í heild sinni á Storytel, í stórskemmtilegum lestri Odds Júlíussonar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán