Heim › ...
Dagbók Kidda klaufa #17 – Rokkarinn reddar öllu eftir Jeff Kinney - hljóðbók

Dagbók Kidda klaufa #17 – Rokkarinn reddar öllu

Höfundur: Jeff Kinney

Flytjandi: Oddur Júlíusson

Þýðandi: Helgi Jónsson

1 klst 54 mín
Sögur útgáfa
Bók 17 af 18 í Dagbók Kidda klaufa

Um bókina

Kiddi mun komast að því að það er ekki eins auðvelt að verða ríkur og frægur og hann heldur ...

Hann gerir sér enga grein fyrir því sem í vændum er þegar hann gerist rótari hjá hljómsveitinni Kukkur í bleiu sem Róbbi bróðir hans stjórnar. Líf tónlistarmannsins er víst ekki alltaf dans á rósum.

Getur Kiddi lagt sitt af mörkum til að Kukkur í bleiu verði ódauðleg hljómsveit eða gerir það út af við hann að eyða of miklum tíma með Róbba rokkara?

Hér er sautjánda bókin um Kidda, en Dagbók Kidda klaufa er einn mest seldi og vinsælast bókaflokkur fyrir ungmenni um allan heim og sá vinsælasti á Íslandi síðustu tíu árin. Bækurnar eftir bandaríska höfundinn og teiknarann Jeff Kinney þykja aðgengilegar, fyndnar og stuðla að meiri áhuga lesenda á bókalestri.

Bókaflokkurinn um Kidda klaufa leit fyrst dagsins ljós árið 2007 í Bandaríkjunum og er nú loks væntanlegur í heild sinni á Storytel, í stórskemmtilegum lestri Odds Júlíussonar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán