Heim › ...
Dagbók Kidda klaufa #16 – Meistarinn eftir Jeff Kinney - hljóðbók

Dagbók Kidda klaufa #16 – Meistarinn

Höfundur: Jeff Kinney

Flytjandi: Oddur Júlíusson

Þýðandi: Helgi Jónsson

1 klst 47 mín
Sögur útgáfa
Bók 16 af 18 í Dagbók Kidda klaufa

Um bókina

Núna ætlar hann Kiddi klaufi að verða við ósk mömmu sinnar, sem gefst aldrei upp á því að gefa stráknum góð ráð, og gerast íþróttahetja. Ekkert mál! Nema hvað! Kiddi kemst að því að það er ekki svo auðvelt að verða góður í íþróttum, hvað þá hetja. Að maður tali nú ekki um ef þú ætlar að verða MEISTARI!

Haldið þið að það takist svo auðveldlega hjá Kidda klaufa? Giskið aftur!

Hér er sextánda bókin um Kidda, en Dagbók Kidda klaufa er einn mest seldi og vinsælast bókaflokkur fyrir ungmenni um allan heim og sá vinsælasti á Íslandi síðustu tíu árin. Bækurnar eftir bandaríska höfundinn og teiknarann Jeff Kinney þykja aðgengilegar, fyndnar og stuðla að meiri áhuga lesenda á bókalestri.

Bókaflokkurinn um Kidda klaufa leit fyrst dagsins ljós árið 2007 í Bandaríkjunum og er nú loks væntanlegur í heild sinni á Storytel, í stórskemmtilegum lestri Odds Júlíussonar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán