Heim › ...
Dagbók Kidda klaufa #14 – Brot og braml eftir Jeff Kinney - hljóðbók

Dagbók Kidda klaufa #14 – Brot og braml

Höfundur: Jeff Kinney

Flytjandi: Oddur Júlíusson

Þýðandi: Helgi Jónsson

1 klst 44 mín
Sögur útgáfa
Bók 14 af 18 í Dagbók Kidda klaufa

Um bókina

Pabbi og mamma Kidda erfa peninga eftir gamla frænku. Allt í einu eiga þau mikið af peningum. Hvað á að gera við allan þenna seðla? Mömmu dettur í hug að endurinnrétta húsið. Ekki eru allir í fjölskyldunni sáttir við það.

En framkvæmdir hefjast, allt er brotið og bramlað. Er þetta rétta leiðin til að eyða peningunum? Kiddi er ekki alveg sannfærður, enda kemur margt skrítið í ljós þegar framkvæmdir við húsið komast á skrið.

Hér er fjórtánda bókin um Kidda, en Dagbók Kidda klaufa er einn mest seldi og vinsælast bókaflokkur fyrir ungmenni um allan heim og sá vinsælasti á Íslandi síðustu tíu árin. Bækurnar eftir bandaríska höfundinn og teiknarann Jeff Kinney þykja aðgengilegar, fyndnar og stuðla að meiri áhuga lesenda á bókalestri.

Bókaflokkurinn um Kidda klaufa leit fyrst dagsins ljós árið 2007 í Bandaríkjunum og er nú loks væntanlegur í heild sinni á Storytel, í stórskemmtilegum lestri Odds Júlíussonar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán