Heim › ...
Bella gella krossari eftir Gunnar Helgason - hljóðbók

Bella gella krossari

Höfundur: Gunnar Helgason

Flytjandi: Gunnar Helgason

4 klst 16 mín
Forlagið
Bók 7 af 7 í Stellubók

Um bókina

Kæri lesandi. Hver hefði trúað því að MÓTOR-KROSS væri svarið við öllum okkar vandamálum?! Hvort sem það er RUGLIÐ í Þór, HRIKALEG vandræði Bellu gellu eða að pabbi GETI EKKI HÆTT að flytja ástarljóð um nak … hérna hér líkama mömmu?? Þetta lagast allt þegar man er komið í gallann, með hjálminn og gleraugun, og gefur allt í botn. Og hver átti hugmyndina að þessu mótor-kross-ÆÐI? Ég! Stella Erlings … já, eða sko … Siggi … og Bella … Ómægod, þið lesið þetta bara sjálf!

Gunnar Helgason þarf vart að kynna fyrir íslenskum börnum, lesendum, öfum og ömmum. Bækurnar hans um Stellu og skrautlega fjölskyldu hennar eru í uppáhaldi hjá þeim öllum, auk þess sem þær eru margverðlaunaðar og stjörnum hlaðnar af hátíðlegum gagnrýnendum. Eftir ófáar ábendingar krakka um allt land um hvaða persóna ætti að vera í fókus í sjöundu bókinni er nú loksins komið að Bellu gellu krossara.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán