
Bekkurinn minn 6: Jólaleikritið
Höfundur: Yrsa Þöll Gylfadóttir, Iðunn Arna
Flytjandi: Andrea Ösp Karlsdóttir
Um bókina
JOLALEIKRITID fjallar um Unni Leu og jólaskemmtun bekkjarins. Unnur Lea skrifar leikrit, leikstýrir og leikur aðalhlutverkið! Hún er viss um að þetta verði flottasta leiksýning allra tíma. Bara ef bekkjarfélagarnir tækju verkefnið alvarlega.
Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan veggja skólans. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.
Hvernig virkar þetta?
- 1Kauptu bókina
Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu
- 2Sæktu Sagnaland appið
Fáanlegt í App Store og Google Play
- 3Hlustaðu hvar sem er
Bókin birtist í bókahillunni þinni
Sækja app





