Heim › ...
Basil fursti: Maðurinn með tígrisaugun eftir Óþekktur - hljóðbók

Basil fursti: Maðurinn með tígrisaugun

Höfundur: Óþekktur

Flytjandi: Matthías Harðarson

Þýðandi: Óþekktur

2 klst 11 mín
Saga Egmont
Hluti af Ævintýri Basil fursta

Um bókina

Það er ýmislegt dularfullt á seyði í Lundúnaborg. Basil fursti og Sam Foxtrot bregða á leik sem skilur marga eftir í öngum sínum. Á meðan situr lögreglan ráðþrota yfir óvenjulegum morðingja sem leikur lausum hala og sýnir fórnarlömbum sínum enga miskunn. Stella Eaton gerir einnig vart við sig, hættulegasti andstæðingur sem Basil fursti hefur komist í tæri við. Hér spinna klækir glæpakvendis og djöfullegt ráðabrugg vandráðinn svikavef.

Persónurnar og notkun á tungumáli í verkinu endurspegla ekki skoðanir útgefandans. Verkið er gefið út sem sögulegt skjal sem inniheldur lýsingar á tíðaranda og skynjun manna sem tíðkaðist á tímum skrifanna.

Ævintýri Basil fursta

Ævintýrin um Basil fursta komu fyrst út á Íslandi árið 1939. Bækurnar vöktu ánægju hér á landi enda auðlesin og skemmtileg ævintýri. Basil fursti er víðkunnur sem konungur leynilögreglumanna. Honum er falið að leysa hin erfiðustu glæpamál víðsvegar um heiminn, enda þykir hann manna færastur til þeirra verka. Höfundur bókanna er óþekktur.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán