Heim › ...
Augu Rigels eftir Roy Jacobsen - hljóðbók

Augu Rigels

Höfundur: Roy Jacobsen

Flytjandi: Berglind Jónsdóttir

Þýðandi: Jón St

6 klst 16 mín
Forlagið
Bók 3 af 4 í Ingrid Barrøy

Um bókina

Augu Rigels er áhrifamikil saga um sterka og óvenjulega konu, framhald bókanna Hin ósýnilegu og Hvítt haf sem hafa fangað hug lesenda um víða veröld. Það er sumar á Barrey, dúnninn er kominn í hús og eggin í tunnur, lífið er aftur fallið í fastar skorður eftir stríðið – eða hvað? Ingrid á einhverju ólokið og hún leggur af stað í langferð með tíu mánaða dóttur sína til að leita að föður hennar, Rússanum Alexander, sem ætlaði að flýja yfir fjöllin til Svíþjóðar um hávetur. Hún rekur slóð hans en hefur stöðugt á tilfinningunni að hún fái ekki að heyra allan sannleikann og að stríðinu sé ef til vill ekki endanlega lokið.

Fyrir Hin ósýnilegu hlaut Roy Jacobsen tilnefningu til hinna virtu Man Booker-bókmenntaverðlauna, fyrstur norskra rithöfunda. Hann hefur jafnframt verið tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í tvígang.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.990 kr