Um bókina

Charlize Wynwood og Silas Nash hafa verið bestu vinir síðan þau lærðu að ganga og ástfangin síðan þau voru fjórtán. En frá og með deginum í dag þekkja þau ekki hvort annað. Fyrsti kossinn, fyrsta rifrildið, augnablikið sem þau urðu ástfangin...allar þessar minningar eru horfnar. Charlie og Silas þurfa í sameiningu að finna út úr því hvað kom fyrir þau og hvers vegna. Því meira sem þau grafa upp því fleiri spurningar vakna:

Hvað kom upp á milli foreldra þeirra? Hvað veit spákonan um málið? Hvers vegna í ósköpunum höfðu þau eiginlega verið par?

Það er ömurlegt að gleyma en það gæti verið verra að muna.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 2.490 kr