
Ad mortem
Höfundar: Mikael Ressem, Ann-Charlotte Persson
Flytjandi: Íris Tanja Flygenring
Þýðandi: Örn Úlfar Höskuldsson
Um bókina
Ungum manni með alvarlega skotáverka er hent út úr bíl fyrir framan bráðamóttökuna á sjúkrahúsinu í Gävle. Inni á bráðastæðinu er það skurðlæknirinn Klara Andersson sem sinnir manninum sem reynist vera sonur hins þekkta klíkuforingja Salims Hassan. Nokkrum dögum síðar kemur kona sem orðið hefur fyrir nauðgun á bráðamóttökuna. Konan er starfsmaður sjúkrahússins og Klara kemst að því að það er óþægileg tenging á milli hennar og konunnar, sem gerir hana vara um sig. Óðara dregst hún sjálf einnig inn í veröld Salims Hassan, veröld sem hverfist um byssur, skotárásir og hefnd.
Lífshættulegt ofbeldi er á uppleið í Gävle samtímis því að hún áttar sig á að mögulega gangi raðnauðgari laus í borginni sem tengist hennar eigin fortíð. Ad Mortem er fyrsta bókin í spennusagnaröð um skurðlækninn Klöru Andersson sem berst við að bjarga lífi fólks á bráðamóttökunni um leið og hún virðist á einhvern hátt sogast inn í hin dularfyllstu glæpamál.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app