Heim › ...
Á byrjunarreit eftir Lee Child - hljóðbók

Á byrjunarreit

Höfundur: Lee Child

Flytjandi: Hinrik Ólafsson

Þýðandi: Bjarni Gunnarsson

12 klst 39 mín
Forlagið
Bók 21 af 10 í Jack Reacher

Um bókina

Bandaríkjamaðurinn vill fá hundrað milljónir dala. Þessi staka setning berst leyniþjónustu Bandaríkjanna frá írönskum njósnara í Hamborg árið 1996 en meira er ekki vitað. Ekki hver Bandaríkjamaðurinn er. Ekki fyrir hvað hann vill fá peningana eða frá hverjum. Jack Reacher er nýkominn úr leyniför til Evrópu sem gekk svo vel að honum er veitt orða fyrir sérstaklega lofsverða breytni í þágu lands og þjóðar.

Síðan er hann sendur í endurmenntun. Í bekknum eru bara tveir aðrir nemendur, annar frá FBI og hinn frá CIA. Og verkefnið? Að finna Ameríkanann og það sem hann er að selja. Í Á byrjunarreit rifjar Reacher upp gamla hermannatakta, með sinn trygga liðþjálfa, Frances Neagley, sér við hlið. Sögusviðið er nýsameinað Þýskaland að kalda stríðinu afloknu, fullt af bandarískum hermönnum að aðlagast nýrri heimsmynd og heimamönnum með stóra drauma og strangar reglur.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán