Um Sagnaland

Íslensk hljóðbókaveita fyrir alla fjölskylduna

Hvað er Sagnaland?

Sagnaland er íslensk streymisveita fyrir hljóðbækur með yfir 2.000 íslenskar hljóðbækur í einu appi: barnabækur, glæpasögur, skáldsögur, ævisögur, rómantík og fleira, auk hlaðvarpa. Nýjar bækur bætast við í hverri viku.

Áskrifendur geta hlustað í símanum eða spjaldtölvunni, sótt bækur og hlustað án nettengingar, notað svefntíma, hlustunarhraða og bókamerki. Sagnaland leggur sérstaka áherslu á barnaefni og býður mikið úrval íslenskra barnabóka fyrir alla aldurshópa.

Sagan

Sagnaland var stofnað af Friðriki Salvari Bjarnasyni og Lúðvíki Páli Lúðvíkssyni og opnaði árið 2026. Markmiðið er einfalt: að gera hljóðbókaheiminn betri fyrir bæði hlustendur og höfunda. Sagnaland er alfarið í íslenskri eigu og tekjurnar verða eftir á Íslandi þar sem þær renna til íslenskra höfunda og útgefenda.

Áskriftir

Sagnaland býður tímamiðaðar áskriftir, 10 tímar á 1.490 kr eða 20 tímar á 2.890 kr á mánuði, ótakmarkaða hlustun á 3.290 kr á mánuði og fjölskylduáskriftir fyrir 2 til 6 notendur frá 3.990 kr á mánuði. Fyrstu 7 dagarnir eru fríir og enginn bindingartími er á áskriftinni. Einnig er hægt að kaupa stakar bækur í bókabúðinni.

Nánari upplýsingar um verð eru á verðsíðunni.

Félagið

Sagnaland er rekið af SL streymi ehf., kt. 430524-1860, Síðumúla 29, 108 Reykjavík. Félagið var stofnað árið 2024. Hafðu samband í gegnum askrift@sagnaland.is eða á þjónustusíðunni.

Prófaðu Sagnaland frítt í 7 daga

Fullur aðgangur að öllu bókasafninu frá 1.490 kr á mánuði. Hættu hvenær sem er.

Skoða áskriftarleiðir