Heim › ...
Vondi kóngurinn eftir H.C. Andersen - hljóðbók

Vondi kóngurinn

7 mín
Saga Egmont

Um bókina

Hræðilega vondur kóngur svífst einskis til þess að ná yfirráðum yfir öllum sem á vegi hans verða. Með hrottalegum herförum og klækjabrögðum vinnur hann undir sig hvert landsvæðið á fætur öðru. Allir óttast hann og ekki að ástæðulausu.

Dag einn fær hann þá flugu í höfuðið að hann verði að sigrast á guði sjálfum. Hugmyndin heltekur hann og eyðir hann árum og dögum í að smíða fullkomin flugskip og mikilsvirk vopn til hernaðarins. En mótspyrnan kemur úr óvæntri átt og er ill við að eiga.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.

H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. „Vondi kóngurinn“ er skopleg saga um valdhafann sem ofmetnast og skortir samkennd og samúð. Hið smáa sigrar það stóra á eftirminnilegan hátt og minnir á að oft getur lítil fluga velt þyngra hlassi en búist var við.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán