Heim › ...
Voðverk í Vesturbænum eftir Jónína Leósdóttir - hljóðbók

Voðverk í Vesturbænum

9 klst 13 mín
Mál og menning/Forlagið

Um bókina

Hver ræðst á dreng á grunnskólaaldri og skilur hann eftir illa meiddan í hjólageymslu fjölbýlishúss við Tómasarhaga? Svoleiðis ráðgátu er augljóslega ekki hægt að treysta lögreglunni einni til að leysa og hin nýstofnaða Vesturbæjarvakt, með Eddu í broddi fylkingar, tekur málið upp á sína arma.

En fleiri þurfa á Eddu að halda. Stúlku í nágrenninu berast dularfullar sendingar og samband Viktors og Snorra er komið í háaloft. Það er því í nógu að snúast fyrir eiturhressan eftirlaunaþega.

Voðaverk í Vesturbænum er sjötta bókin um Eddu á Birkimelnum og glímu hennar við flókin saka- og fjölskyldumál. Hér í dásamlegum lestri Helgu. E. Jónsdóttur sem endranær.

Jónína Leósdóttir hefur skrifað tvær vinsælar glæpasagnaseríur, allt hörkuspennandi sögur sem kitla hláturtaugarnar og ríghalda frá upphafi til enda.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán