
Voðagerði: Lilja
Höfundar: Hilmar Örn Óskarsson, Blær Guðmundsdóttir
Flytjandi: Hilmar Örn Óskarsson
Um bókina
Velkomin í Voðagerði – hér er ALLT að óttast!
Einn morguninn mætir Lilja í skólann með límband fyrir munninum. Meðal nemenda og kennara kvikna ótal hugmyndir, allar frekar óhugnanlegar. Sjálf er Lilja þögul sem gröfin en augljóslega blundar eitthvað hræðilegt í henni og vei sé öllum í Voðagerði ef það sleppur út.
Á Reykjanesskaga liggur bær sem sést ekki með berum augum en þú finnur stundum fyrir þegar þú lítur yfir hraunið. Það er allt og sumt. Dálítil tilfinning sem þú heldur að sé bara eftirvænting eða söknuður. Bærinn heitir Voðagerði og er við fyrstu sýn ekki ólíkur þeim bæjum sem þú þekkir nú þegar. Ekki við fyrstu sýn …
Í Voðagerði gerast skrýtnir hlutir. Stundum uggvænlegir. Stundum hreint og beint hryllilegir.
Ekki fyrir viðkvæmar sálir!
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app