Heim › ...
Víst getur Lotta næstum allt eftir Astrid Lindgren - hljóðbók

Víst getur Lotta næstum allt

23 mín
Mál og menning

Um bókina

Það er alveg sérstakt með hana Lottu litlu á Skarkalagötu, hún getur næstum allt. Stundum skellur hurð nærri hælum, eins og þegar Bangsi lenti í ruslatunnunni – en Lotta leysir úr öllu. Þegar Jónas og Mía María eru miður sín yfir því að öll jólatré í bænum eru uppseld, þá bara gengur Lotta í málið. Og bjargar auðvitað jólunum!

Víst getur Lotta næstum allt eftir Astrid Lindgren birtist hér í dásamlegum lestri Ilmar Kristjánsdóttur. Við heyrum hér um heillandi hversdag Skarkalagötunnar og sagan um stúlkuna Lottu sem hefur óbilandi trú á eigin getu er bæði hjartastyrkjandi og skemmtileg.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán