Heim › ...
Vetrarþrestir eftir Benný Sif Ísleifsdóttir - rafbók

Vetrarþrestir

Rafbók
Mál og menning

Um bókina

Þerna óskast til starfa á hótel á Austurlandi. Æskilegur aldur 17-25 ára, liðleg, glaðsinna og mannblendin.

Árið er 1969 og Hinrik, ættstór en vinafár ungur maður úr Reykjavík, sem hefur hvorki enst í námi né starfi, reynir fyrir sér í hótelrekstri austur á fjörðum. Hann ræður til sín starfsfólk með það í huga að eignast bæði vin og kærustu – það sem hann helst óskar sér – og fálmar þannig eftir hamingjunni.

Vetrarþrestir er söguleg skáldsaga um fólk á krossgötum sem leggur allt í sölurnar í von um að tengjast og tilheyra öðrum.

Dyggur hópur lesenda missir aldrei af nýrri bók frá Benný Sif Ísleifsdóttur en skáldsögur hennar um Gratíönu Hansdóttur hafa til að mynda notið gríðarlegra vinsælda. Verk Bennýjar einkennast af ríkri frásagnargáfu, eftirminnilegum persónum og næmu auga fyrir mannlegum samskiptum, klaufalegum sem innilegum.

Hvernig virkar þetta?

  1. 1
    Kauptu bókina

    Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu

  2. 2
    Sæktu Sagnaland appið

    Fáanlegt í App Store og Google Play

  3. 3
    Lestu hvar sem er

    Bókin birtist í bókahillunni þinni

-15%3.640 kr fyrir áskrifendur. Áskrifendur fá 15% afslátt af öllum bókum.