Heim › ...
Verjandi Jakobs eftir William Landay - hljóðbók

Verjandi Jakobs

6 klst 40 mín
Bókafélagið

Um bókina

Starf saksóknarans Andy Barbers er að fá morðingja dæmda á bak við lás og slá. Þegar lík pilts, skólabróður Jakobs sonar hans, finnst með stungusár verður Andy ákveðinn í að finna og ákæra morðingjann, uns fram kemur mikilvægt sönnunargagn sem tengir Jakob við morðið. Skyndilega standa Andy og eiginkona hans frammi fyrir því að sonur þeirra er ákærður fyrir kaldrifjað morð. Hjónin gera allt sem þau geta til að verja drenginn sinn, andspænis verstu martröð hverra foreldra, því að djúpt undir niðri þekkja þau hann betur en nokkur annar.

Eða er það ekki svo? Frábær metsölubók og æsispennandi réttarfarsdrama sem nýlega hefur slegið í gegn í átta þátta sjónvarpsþáttaseríu sem Apple TV framleiddi með Chris Evans í aðalhlutverki.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán