
VeikindaDagur
Höfundur: Bergrún Íris Sævarsdóttir, Sigmundur Breiðfjörð, Bergrún Íris Sævarsdóttir, Sigmundur Breiðfjörð
Flytjandi: Sigurður Þór Óskarsson
Um bókina
Þetta byrjaði þegar ég gleymdi að taka lyfin. Fimm dögum síðar ligg ég í líkhúsinu ... dáinn og stjarfur á köldu stálborðinu.
Dagur er eitthvað svo ólíkur sjálfum sér, með botnlausa matarlyst, dynjandi höfuðverk, gloppur í minninu og óteljandi spurningar. Hvað varð eiginlega um Breka? Af hverju er auga í klósettinu? Á hann kannski séns í Ylfu Dögg?
VeikindaDagur er æsispennandi hrollvekja eftir þau Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og Sigmund Breiðfjörð. Sögur þeirra og teikningar hafa heillað lesendur um árabil en í þessari blóðugu bók halda þau á nýjar og hræðilegar slóðir.
Prent- og rafbókarútgáfan er prýdd ótal ógnvekjandi teikningum sem túlkast hér með einkar ógeðslegri hljóðsetningu í hljóðbókarútgáfunni og er ALLS EKKI fyrir viðkvæma! Hér í frábærum lestri Sigurðar Þórs Óskarssonar.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app