
Um bókina
Í miðjum Jónsmessufagnaði í bænum Stenräsk flýtur lík upp úr Köldumýri. Í fyrstu er talið að þetta sé lík eiginkonu lögreglustjórans Wikings Stormberg sem hafði horfið fyrir mörgum árum. En svo kemur í ljós að líkið er af karlmanni.
Það hafði verið fest við botn mýrinnar með stiku í gegnum hjartað – eins og í vampírusögu. Við rannsókn málsins hverfur Wiking á vit fortíðarinnar og sogast óvænt inn í eigin fjölskyldusögu þar sem ískyggileg leyndarmál opinberast honum í fyrsta sinn. Mögnuð spennusaga um ofbeldi og þrár, kúgun og arðrán – á fólki jafnt sem náttúru. Veðrafjall er sjálfstætt framhald metsölubókanna Heimskautsbaugur og Kaldamýri sem hlotið hafa einróma lof gagnrýnenda. Bókin kemur út í sama mund á öllum Norðurlöndum.
Verðlaunahöfundurinn Liza Marklund er óumdeild drottning norrænna glæpasagna. Bækur hennar hafa selst í yfir 23 milljónum eintaka og meðal annars komist í efsta sæti metsölulista New York Times. „Liza Marklund kann þá list að skrifa glæpasögur ... Enginn verður fyrir vonbrigðum með þessa nýju bók hennar. ... Heildareinkunn: 5 – Frábær!
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app