Heim › ...
Vatnsdæla saga  eftir Óþekktur - hljóðbók

Vatnsdæla saga 

Höfundur: Óþekktur

Flytjandi: Hjálmar Hjálmarsson

3 klst 34 mín
Saga Egmont

Um bókina

Vatnsdæla saga hefst upphaflega í Noregi en færist svo heim til Íslands. Hún segir frá Ingimundi gamla og landnámi hans í Vatnsdal þar sem hann settist að og gerðist ættarhöfðingi. Verkið hefst eins og fleiri Íslendingasögur í heiðni en endar í kristni.

Vatnsdæla saga er ættarsaga og fjallar um sögu fjögurra ættliða. Hún gerist í kring um árið 900 og telst því til yngri verka Íslendingasagnanna. Talið er að sagan hafi verið rituð á 13. öld.

Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán